PERSÓNUVERND OG MEÐFERÐ PERSÓNUUPPLÝSINGA

Evrópuferðir munu tryggja að persónuverndarréttindi þín séu virt og veita þér meira vald yfir þínum
eigin upplýsingum.

Evrópuferðir munu nota upplýsingarnar sem þú gefur okkur í þeim tilgangi sem lýst er í stefnu okkar
um persónuvernd. Það felur meðal annars í sér að veita þér þá þjónustu sem þú óskað hefur eftir og
bæta þjónustu okkar við viðskiptavini.

Evrópuferðir munu ekki senda þér markaðsefni hafir þú afþakkar það. Við munum hinsvegar senda þér
mikilvægar upplýsingar varðandi ferð þína, ferðatilhögun og annað sem skiptir máli.
Hér að neðan er hægt að lesa frekar um persónuverndarstefnu Evrópuferða.
Ef þú hefur einhverjar spurningar þá vinsamlegast hafðu samband við okkur í gegnum tölvupóst
info@evropuferdir.is

Vinsamlegast hafðu í huga að samantektin hér að ofan og persónuverndarstefnan hér að neðan hafa
ekki samningsgildi og eru því ekki hluta af samningi þínum við Evrópuferðir með fyrirvara um réttindi
þín samkvæmt gildandi lögum.

TRÚNAÐUR

Samkvæmt lögum eru Evrópuferðir bundnar þagnaskyldu gangvart viðskiptavinum sínum og gefum við
því aldrei upp upplýsingar um ferðalög þín við aðra.

Evrópuferðir áskilja sér rétt til að breyta skilmálum þessum fyrirvaralaust.

MARKAÐSEFNI OG TILKYNNINGAR


Við sendum þér markaðsefni þegar þú hefur skráð þig fyrir því.

Þegar þú veitir okkur upplýsingar getur þú verið spurður hvort þú viljir ekki fá markaðsefni frá okkur.
Evrópuferðir kynnir stundum vörur og þjónustur frá þriðja aðila og geta Evrópuferðir beðið um
samþykki þitt fyrir því að taka við því markaðsefni.

Við virðum óskir þínar um hvort þú viljir fá markaðsefni frá okkur og með hvaða hætti þú vilt fá það
sent.

Þú getur skipt um skoðun og óskað eftir því að fá ekki sent frá okkur markaðsefni. Til að hætta að fá sent
frá okkur markaðsefni getur þú smellt á „afskrá af póstlista” í þeim tölvupósti sem við sendum þér. Þú
getur einnig sent okkur tölvupóst á info@evropuferdir.is og við afskráum þig af póstlista.

Við munum hinsvegar halda áfram að senda þér upplýsingar sem viðkoma þeirri þjónustu sem þú hefur
keypt af okkur. Þetta gæti verið t.d ferðagögn, upplýsingar um breytingar, ferðatilhögun eða annað.


HVE LENGI GEYMUM VIÐ PERSÓNUUPPLÝSINGAR


Persónuupplýsingar þínar geymum við eins lengi og nauðsynlegt er í þeim tilgangi að nota þær til
úrvinnslu. Allar upplýsingar er tengjast ferðalagi þínu, til að ganga frá ferðatilhögun þinni og síðan til að
geta svarað öllu sem lítur að bókun þinni við okkur, ágreiningi eða spurningar.

HVENÆR Á PERSÓNUVERNDARSTEFNA VIÐ


Persónuverndarstefna Evrópuferða á við þegar við söfnum, nýtum eða vinnum með öðrum hætti
persónuupplýsingar sem varða samband þitt við okkur sem viðskiptavinur. Þetta á við þegar þú bókar
flug, ferðast með okkur eða nýtir viðbótarþjónustu og vefsíðu okkar. Einnig á persónuverndarstefnan við
þegar þú hefur samband við þjónustuaðila okkar eða bókar þjónustu okkar í gegnum þriðja aðila.
Dæmi um slíkan þriðja aðila er önnur ferðaskrifstofa eða flugfélag. Til að nálgast frekari upplýsingar um
gildissvið persónuverndarstefnanna, til dæmis þegar það eru fleiri „ábyrgðaraðilar gagna“, mælum við
með því að þú kynnir þér persónuverndarstefnu viðkomandi til að fá frekari upplýsingar.

HVAÐ ERU PERSÓNUUPPLÝSINGAR


Allar upplýsingar sem auðkenna þig eða væri hægt að nota í þeim tilgangi, teljast til persónuupplýsinga.
Dæmi um slíkt er nafnið þitt, tengiliðaupplýsingar þínar eða upplýsingar um fyrri kaup

Upplýsingar um hvernig þú notar vefsíðu okkar getur einnig flokkast sem persónuupplýsingar.

Við söfnum persónuupplýsingum um þig hvenær sem þú nýtir þér þjónustu okkar eða vefsíðu eða hefur
samband við okkur í gegnum tölvupóst, samfélagsmiðla eða þjónustuaðila. Það sama gildir þegar
þjónustan er veitt af þriðja aðila eða aðilum sem koma fram fyrir hönd Evrópuferða.

Vinsamlegast hafðu í huga að ef þú vilt ekki veita okkur persónuleg gögn sem eru nauðsynleg til þess að
efna samning eða þegar vinnslu er krafist af okkur samkvæmt lögum getum við mögulega ekki veitt þér
þá þjónustu sem óskað er eftir, að öllu leyti eða að hluta.

Einnig getum við fengið persónuupplýsingar þínar frá þriðja aðila:
 Þegar fyrirtæki sem er verktaki eða þjónustuaðili Evrópuferða veitir þér þjónustu.
 Þegar fyrirtæki eða þriðji aðili sem tengist ferð þinni veitir þér þjónustu, svo sem tollayfirvöld
eða útlendingaeftirlit, hótel, rekstraraðilar flugvalla, flugfélög sem þú ferðaðist með áður eða
munt ferðast með næst á ferðalagi þínu.

EVRÓPUFERÐIR VINNA EFTIRFARANDI UPPLÝSINGAR:


 Upplýsingar sem þú veitir sem eru nauðsynlegar til að annast og ljúka við bókun á þjónustu sem
þú hefur óskað eftir.
 Nafn, heimilisfang, tölvupóstfang, tengiliðaupplýsingar, fæðingardagur, kyn, vegabréfsnúmer,
reiknings- og greiðsluupplýsingar.

 Upplýsingar á meðan á ferð þinni stendur, um auka þjónustu sem pöntuð hefur verið, samskipti
við birgja sem veita þjónustu sem tengist ferð þinni og við starfsfólk.
 Ef þú bókar fyrir einhvern annan getum við safnað reikningsupplýsingum þínum en kunnum að
vera í beinu sambandi við farþegann.
 Við getum safnað upplýsingum á borð við samskipti þín við starfsfólk okkar á meðan ferðalagi
stendur.
 Við söfnum saman upplýsingum um bókun þína og ferðaáætlun.

 Við söfnum saman upplýsingum um séróskir sem tengjast þjónustu sem þú ert að kaupa, beiðnir
og viðbótaraðstoð.
 Upplýsingar sem við fáum vegna fyrri ferða, hótel, ferðatilhögun, ferðatengd mál, truflanir eða
breytingar á þjónustu svo sem eins og uppfærsla, tapaður farangur, kvartanir og endurgjöf
viðskiptavina.
 Við geymum upplýsingar þínar ef þú hefur tekið þátt í leik/keppni, skráð þig á póstlista okkar eða
haft samband við okkur í gengum samfélagsmiðla.
 Upplýsingar sem þú gætir veitt okkur úr ánægjukönnun.
 Við greinum hvernig viðskiptavinir okkar nota söluleiðir okkar, þjónustu og vörur til að vita
hvernig við getum bætt þjónustu okkar og notum upplýsingar t.d. frá Google, Instagram og
Facebook til að senda þér upplýsingar
 Við getum fylgst með hvernig þú og aðrir viðskiptavinir nota vefsíðu okkar svo við getum fundið
leiðir til þess að bæta upplifunina á vefsíðunni og auka öryggi hennar.
 Við getum notað og geymt persónuupplýsingar þínar, þar með talið kaupsögu þína, í
stjórnarlegum tilgangi sem gæti farlið í sér t.d. bókhald og reikningagerð, endurskoðun,
staðfestingu á kreditkorti eða öðru greiðslukorti og skimum fyrir svikum.
 Í sumum tilfellum þurfa Evrópuferðir að vinna með viðkvæmar persónuupplýsingar. Þetta geta
verið upplýsingar eins og trúarbrögð, heilsufar eða þjóðernisuppruni sem krefjast frekari
öryggisráðstafana samkvæmt lögum Evrópusambandsins og íslenskum lögum um persónuvernd.
Vísað er til þessara upplýsinga sem „ viðkvæmar upplýsingar”.
 Ferðaskrifstofum ber skylda samkvæmt reglugerðum að halda skrá yfir farþegaupplýsingar. Lög
ákveðinna landa eins og Bandaríkin, Bretland og Kanada krefjast þess að flugfélög veiti
landamæraeftirliti og útlendingaeftirliti tilteknar farþegaupplýsingar.
 Evrópuferðir heldur utan um gögn sem geta verið notuð, og hefur rétt til að neita tilteknum
einstaklingum um þjónustu vegna fyrri atvika, t.d eins og að hafa stofnað farþegum eða
starfsfólki í hættu eða verði með áreitni í garð farþega og starfsmanna.

 Evrópuferðir vinnur ekki úr persónuupplýsingum þínum nema þar að lútandi lagastoð sé fyrir
hendi. Lagastoðin kann að breytast eftir því hver tilgangur vinnslunnar er. Í næstum öllum
tilvikum er lagastoðin eftirfarandi:
 Vinnsla þessara upplýsinga er nauðsynleg til þess að efna samning eða til þess að taka skref til
þess að uppfylla kröfur þínar áður en gengið er til samnings, þ.e. að við getum gengið frá
ferðatilhögun þinni, unnið bókun þína eða veitt þér þá þjónustu sem þú hefur óskað eftir.
 Evrópuferðir verða oft að vinna persónuupplýsingar þínar til að hlíta lagalegum kröfum eða
kröfum eftirlitsaðila.
 Vegna þess að þú hefur gefið samþykki þitt til Evrópuferðir að vinna upplýsingar þínar í
ákveðnum tilgangi.
 Í tilfellum þar sem vinnsla gagna þinna er háð öðrum lögum getur lagastoðin fyrir vinnslunni
verið önnur en getið er hér að ofan. Undir slíkum kringumstæðum kann vinnslan að vera byggð á
samþykki þínu í öllum tilfellum.
 Til þess að Evrópuferðir geti veitt þér þjónustu, svo sem eins og að ganga frá ferðatilhögun
þinni, er nauðsynlegt fyrir okkur að vinna sumar persónuupplýsingar þínar. Við munum þurfa að
vinna upplýsingar eins og nafnið þitt, tengiliðaupplýsingar, greiðsluupplýsingar svo þú getir
bókað vörur okkar, farið um borð í flug eða innritað þig á hótel ef um pakkaferð er að ræða.

LÖGMÆTIR HAGSMUNIR


Evrópuferðir er ferðaþjónustuveitandi og þess vegna höfum við lögmæta hagsmuni af því að vinna
persónuupplýsingar þínar til þess að veita þá þjónustu sem við bjóðum.
Sem ferðaskrifstofa þurfa Evrópuferðir að hlíta kröfum eftirlitsaðila og getur þurft persónuupplýsingar
þínar til að uppfylla þær kröfur.
Þetta á við ef þjónusta truflast og við þurfum að veita upplýsingar um viðskiptavini, upplýsingar til
annarra landa vegna vegabréfaeftirlits eða ef veita þarf læknisfræðilegar upplýsingar.

Í einhverjum tilvikum getum við þurft að vinna persónuupplýsingar þínar þegar þú hefur veitt samþykki
þitt fyrir því. Þú getur alltaf afturkallað samþykkið hvenær sem er. Vinsamlegast hafðu samband við
Evrópuferðir ef þú vilt afturkalla samþykki þitt með því að senda tölvupóst á info@evropuferdir.is

Evrópuferðir þarf í mörgum tilfellum að deila persónuupplýsingum þínum með flugfélögum,
ferðaskrifstofum eða hótelum sem taka þátt í að ganga frá ferðatilhögun þinni.
Greiðslu- og kreditkortafyrirtæki, fyrirtæki, stjórnvöld, þriðju aðilar sem koma að því að veita þjónustu.

Evrópuferðir getur þurft að láta af hendi persónulegar upplýsingar þínar ef okkur ber lagaskylda til, þar
með talið ef hafið er áætlunarflug frá nýjum áfangastað þar sem landslög krefjast þess að við veitum
persónuupplýsingar.

Evrópuferðir getur gert breytingar á persónuverndarstefnu sinni eins og þörf krefur eða kröfur eru
gerðar til, á hverjum tíma.

Samkvæmt löggjöf Evrópusambandsins og íslenskum persónuverndarlögum getur þú óskað eftir afriti af
persónuupplýsingum þínum ef þær eru unnar af Evrópuferðir. Við gerum allt sem á okkar valdi
stendur til að bregðast við beiðni þinni innan 30 daga frá móttöku.

Beiðni þín verður að vera skrifleg og innihalda eftirfarandi upplýsingar:
Nafn og tölvupóstfang
Upplýsingar um beiðni þína.
Upplýsingar sem auðvelda okkur að finna þær upplýsingar sem þú ert að óska eftir. T.d. bókunarnúmer,
flugnúmer, dagsetningar, tölvupóstfang, símanúmer eða aðrar tengiliðaupplýsingar.
Leggja þarf fram gild persónuskilríki s.s. vegabréf eða ökuskírteini til að staðfesta hver leggur fram
beiðnina.

Senda skal beiðni þína á:
info@evropuferdir.is

Þú hefur einnig rétt á að leggja fram kvörtun til Persónuverndar. Kvörtun má senda skriflega til:
Persónuvernd
Rauðarárstígur 10
105 Reykjavík