Hópar
Pör
Marriott Praia D'EI Rey 5*
+ 10 nætur og 7 golfhringir frá 319.000 kr
11 dagar
|
10 nætur
·
Verð á mann
330.000
Brottför
Lissabon, Portúgal
Heimkoma
Lissabon, Portúgal
Um ferðina
Í um klukkustundar akstursfjarlægðar frá Lissabon er hið frábæra golfsvæði Praia DEI Rey sem er mjög vinsælt sérstaklega meðal norðurlandabúa. Strandarvöllurinn Praia Del Rey er margverðlaunaður en svæðið fékk aukna vikt þegar hinn nýji völlur West Cliffs var opnaður á árinu 2017 ásamt glæsilegu klúbbhúsi.
Marriott hótelið er nýuppgert glæsilegt hótel með mörgum veitingastöðum og frábæru útsýni yfir atlantshafið. Herbergin eru stór og rúmin sérstaklega þægileg. Á hótelinu eru einnig SPA og flott útisvæði með bekkjum og sundlaugum.
Við getum svo sannarlega mælt með þessu glæsilega hóteli ásamt tveimur af bestu golfvöllum Portúgal á frábæru verði.
Endilega sendið okkur skilaboð ef lengd ferðar eða tímasetningarnar henta ekki og við getum gert föst tilboð í allar stærðir af hópum.
Vinsamlegast fyllið út formið hér að neðan og gerum okkar allra besta til að finna drauma golfferðina !
Innifalið
+ Flug með ICELANDAIR til og frá Lissabon með sköttum
+ Möguleiki á að uppfæra á SAGA CLASS gegn aukagjaldi
+ 20 kg taska, 10 kg handfarangur og 15 kg golfsett
+ Gisting í 10 eða 11 nætur í double/twin herbergi
+ Morgunmatur alla dagana
+ 7 eða 8 hringir á Praia DEI Rey og West Cliffs. Bókum strax rástíma eftir ykkar óskum. Hægt að bæta við rástímum að vild.
+ Flutningur til og frá hóteli á golfvellina
+ Aðgangur að líkamsrækt, jacuzzi, Tyrknesku baði og sundlaugum
+ Frítt wifi á öllu hótelinu
Ekki innifalið
+ Akstur til og frá flugvelli
+ Bjóðum upp á akstur til og frá flugvelli fyrir einstaklinga og allar stærðir af hópum.
+ Golfbílar eru ekki innifaldir en hægt að panta fyrirfram og kosta 45 EUR hringurinn.
Hafa samband
Brottfarir
27. apríl 2025
8. maí 2025