Praia DEI Rey - The Village 4*

+ 10 nætur og 7 golfhringir frá 269.000 kr

11 dagar

|

10 nætur

Brottför

Lissabon, Portúgal

Heimkoma

Lissabon, Portúgal

Um ferðina

Í um klukkustundar akstursfjarlægðar frá Lissabon er hið frábæra golfsvæði Praia DEI Rey sem er mjög vinsælt sérstaklega meðal norðurlandabúa. Strandarvöllurinn Praia Del Rey er margverðlaunaður en svæðið fékk aukna vikt þegar hinn nýji völlur West Cliffs var opnaður á árinu 2017 ásamt glæsilegu klúbbhúsi.

Praia DEI Rey - The Village 4* eru íbúðir sem eru staðsettar rétt við golfvöllinn en morgunverður er á hótelinu og nokkrir veitingarstaðir. Fríar skutlur eru á milli sem er örstutt frá.

Íbúðirnar eru mjög vel búnar og eru með 2 svefnherbergjum sem rúma 3-4 manns eða 3 svefnherbergjum sem rúmar 5-6 manns.

Við getum svo sannarlega mælt með þessum íbúðum ásamt tveimur af bestu golfvöllum Portúgal á frábæru verði.

Endilega sendið okkur skilaboð ef lengd ferðar eða tímasetningarnar henta ekki og við getum gert föst tilboð í allar stærðir af hópum.

Vinsamlegast fyllið út formið hér að neðan og gerum okkar allra besta til að finna drauma golfferðina !

Innifalið

+ Flug með ICELANDAIR til og frá Lissabon með sköttum

+ 20 kg taska, 10 kg handfarangur og 15 kg golfsett

+ Gisting í 10 eða 11 nætur í twin herbergi

+ Morgunmatur alla dagana

+ 7 eða 8 hringir á Praia DEI Rey og West Cliffs. Bókum strax rástíma eftir ykkar óskum. Hægt að bæta við rástímum að vild.

+ Flutningur til og frá íbúðunum á golfvellina

Ekki innifalið

+ Akstur til og frá flugvelli

+ Bjóðum upp á akstur til og frá flugvelli fyrir einstaklinga og allar stærðir af hópum.

+ Einnig getum við boðið upp á bílaleigubíl af öllum stærðum og gerðum.

Ferðaskipulag

Dagur 1

KEFLAVÍK - LISSABON

Flogið í beinu flugi Icelandair kl. 16:00 og lent í Lissabon kl. 21:20 að staðartíma.

Dagar 2 til 10

GOLF Á PRAIA DEI REY OG WEST CLIFFS

Njótið þessara frábæru golfvalla í fallegu umhverfi. Gaman er að koma í klúbbhúsið eftir leik og fá sér gott að borða.

Dagur 11

LISSABON- KEFLAVÍK

Flogið er heim í beinu flugi Icelandair kl. 22:20 og lent í Keflavík kl. 01:50.

Hafa samband

Brottfarir

3. apríl 2025

13. apríl 2025

10. apríl 2025

20. apríl 2025

13. apríl 2025

24. apríl 2025

24. apríl 2025

4. maí 2025

27. apríl 2025

8. maí 2025