Borg
Pólland
Pör
Varsjá - 4-7. október
Verð frá 79.000 kr.
4 dagar
|
3 nætur
·
Verð á mann
79.000
Brottför
Varsjá, Pólland
Heimkoma
Varsjá, Pólland
Um ferðina
Helgarferð til Varsjá í beinu flugi 4-7 október.
Varsjá kemur öllum á óvart sem heimsækja þessa skemmtilegu höfuðborg Póllands. Í borginni er mikið af fallegum byggingum og torgum og mikið mannlíf. Urmull matsölustaða má finna í borginni og þar er mjög hagstætt og gott að versla.
Boðið er upp á þrjú sérvalin hótel.
Öll hótelin eru vel staðsett og í göngufæri við miðborgina.
Einungis er um 15-20 mínútna akstur frá flugvellinum á hótelin okkar sem staðsett eru í miðbænum.
3* hótel - Ibis Warszawa Stare Miasto
79.000 kr. á mann
Mjög fint 3* hótel sem fær góðar umsagnir á netinu. Hótelið er mjög vel staðsett í aðeins 10 mínútna göngufjarlægð frá fallega gamla bænum í Varsjá. Einnig er stutt á stærstu verslunarmiðstöð Póllands sem heitir Westfield Arkadia.
4* hótel - Crowne Plaza Warsaw
89.000 kr. á mann
Þetta fallega fjögurra stjörnu hótel fær afskaplega góðar umsagnir á netinu og er mjög vel staðsett í miðbæ Varsjá. Í aðeins 5 mínútna göngufjarlægð er að finna marga skemmtilega veitingastaði og bari.
5* hótel - Warsaw Marriott Hotel
109.000 kr. á mann
Lúxus Marriott hótel sem er staðsett í hjarta miðbæ Varsjá. Hótelið er við hliðina á Warsaw Central Station sem er aðal lestarstöð Varsjá. Í 5 mínútna göngufjarlægð er Zlote Tarasy sem er flott verslunarmiðstöð sem er m.a. með Hard Rock Cafe veitingastað og fleira.
Sjá má myndir af öllum hótelunum á tengli hér ofar á síðunni.
Innifalið
+ Beint flug með Play til og frá Varsjá með tösku og sköttum
+ 20 kg taska
+ Gisting í tveggja manna herbergi með morgunmat
Ekki innifalið
- Ferðir til og frá flugvelli.
- Fararstjórn
Ferðaskipulag
Dagar 1 til 1
Keflavík - Varsjá
Beint flug með PLAY kl 14:50 og lent er í Varsjá kl 20:50 að staðartíma.
Dagar 2 til 3
Varsjá
Tíminn nýttur til að rölta um þessa fallegu borg, fara í skoðunarferðir, versla og borða góðan mat.
Dagar 4 til 4
Varsjá - Keflavík
Flogið er heim kl 21:50 og lent í Keflavík um miðnætti kl 00:05.
Hafa samband
Brottfarir
Verð á mann
79.000
kr.
4. október 2024
7. október 2024
Uppselt!