Glasgow - 7-10. nóv

Verð frá 99.000 kr.

4 dagar

|

3 nætur

·

Verð á mann

99.000

Brottför

Glasgow, Skotland

Heimkoma

Glasgow, Skotland

Um ferðina

Beint flug með Icelandair.


Flestir þekkja Glasgow, en ekki allir hafa heimsótt þessa fallegu borg. Í borginni er mikið mannlíf og menning. Glasgow hefur ein flottustu listasöfn heims og byggingarstíll borgarinnar mætti einnig kalla list fyrir sig. Á Buchanan stræti eru ótalmargar búðir, veitingastaðir og pöbbar sem leyfa manni ekki að leiðast.

Boðið er upp á þrjú sérvalin hótel 3, 4 og 5*. Öll hótelin eru einstaklega vel staðsett og í göngufæri við Bunchanan stræti.

3* hótel - Point A Glasgow

99.000 kr. á mann

Vel staðsett 3* hótel sem er í 10 mínútna göngufjarlægð frá aðal lestarstöðinni í Glasgow og aðeins í 5 mínútna göngufjarlægð frá Buchanan stræti sem er aðal göngugatan í Glasgow.

4* hótel - Yotel Glasgow

109.000 kr. á mann

Fínt 4* hótel staðsett við hliðina á Glasgow Central sem er aðal lestarstöðin í Glasgowg og stuttur 5 mínútna göngutúr á Buchanan stræti. Á hótelinu er flottur og vinsæll þakbar sem heitir VEGA, keiluhöll, líkamsrækt og einnig veitingastaður.

5* hótel - Kimpton Blythswood Square Hotel

149.000 kr. á mann

Virkilega fallegt og snyrtilegt 5* hótel á besta stað Glasgow. Hótelið er byggt með breskum konungsstíl og er sannkallað lúxushótel. Byggingin var byggð 1823, en hefur verið viðhaldið eins og konungshöll. Á hótelinu er vinsæll veitingastaður sem fær mjög góðar umsagnir.

Sjá má myndir af öllum hótelunum á tengli hér ofar á síðunni.

Ferðaskipulag

Dagar 1 til 1

Keflavík - Glasgow

Beint flug með Icelandair til Glasgow. Útflugið er kl 07:35 frá Keflavík og lent er í Glasgow kl 09:55.

Dagar 2 til 3

Glasgow

Skoðaðu, verslaðu, borðaðu og njóttu í fjölmennustu borg Skotlands!

Dagar 4 til 4

Glasgow - Keflavík

Heimflug með Icelandair. Flogið er kl 12:45 frá Glasgow og lent í Keflavík kl 15:10.

Hafa samband

Brottfarir

Verð á mann

99.000

kr.

7. nóvember 2024

10. nóvember 2024